Reglur um upplýsingaskyldu vegna gjaldeyrisviðskipta og fjármagnshreyfinga milli landa
1. gr.
Almenn upplýsingaskylda.
Til þess að Seðlabanki Íslands geti sinnt lögboðnu eftirliti og hagskýrslugerð, sbr. 10. og 11. gr. laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál og 22. og 24. gr. laga nr. 36/1986 um Seðlabanka Íslands, er skylt að veita honum allar upplýsingar um gjaldeyrisviðskipti og annað er varðar greiðslujöfnuð og stöðu þjóðarinnar við útlönd. Seðlabankinn nýtur í þessu efni sömu réttinda og Hagstofa Íslands og liggja við sömu viðurlög sé upplýsingarskyldu ekki fullnægt. Stjórnendur og starfsmenn Seðlabankans eru bundnir þagnarskyldu um hagi viðskiptamanna og önnur atriði sem leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls.
2. gr.
Tilkynningaskylda og tilkynningaskyldir aðilar
Þeir aðilar sem heimild hafa til milligöngu um gjaldeyrisviðskipti og verslunar með erlendan gjaldeyri skv. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 87/1992, skulu fullnægja kröfum Seðlabankans um skráningu gjaldeyrisviðskipta. Flokka skal viðskiptin eftir eðli þeirra í samræmi við flokkunarlykla Seðlabankans og sundurliða þau í tölvutæku formi, sbr. handbók Seðlabanka Íslands um gjaldeyrismál og gjaldeyrisviðskipti, og koma þeim upplýsingum til Seðlabankans. Fari gjaldeyrisviðskipti fram fyrir milligöngu þeirra aðila sem getið er í 1. mgr., er einstaklingum og lögaðilum skylt að veita framangreindum milligönguaðilum allar þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að þeir geti sinnt upplýsingaskyldu sinni samkvæmt 1. mgr. Jafnframt ber einstaklingum og lögaðilum að uppfylla tilkynningaskyldu sína til Seðlabankans skv. 3. gr. reglna þessara, vegna upplýsinga sem ekki koma fram í tilkynningum milligönguaðila skv. 1. mgr. Fari gjaldeyrisviðskipti fram án milligöngu framangreindra aðila, er einstaklingum og lögaðilum skylt að veita Seðlabankanum upplýsingar um eðli viðskipta samkvæmt sundurliðun á eyðublöðum sem Seðlabankinn leggur til og þar liggja frammi. Jafnframt skal senda viðbótarupplýsingar um tilgreindar fjármagnshreyfingar skv. 3. gr. reglna þessara. Lögaðilum er skylt að senda Seðlabankanum mánaðarlega yfirlit um þessi viðskipti en einstaklingar skulu tilkynna þessi viðskipti jafnóðum.
3. gr.
Tilkynningaskyldar fjármagnshreyfingar milli landa.
Skylt er að tilkynna Seðlabankanum um eftirfarandi fjármagnshreyfingar milli landa:1. Fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri hér á landi, sbr. lög nr. 34/1991 .2. Beinar fjárfestingar innlendra aðila í atvinnurekstri erlendis.3. Kaup erlendra aðila á fasteignum á Íslandi og endursala á þeim.4. Kaup innlendra aðila á fasteignum í útlöndum og endursala á þeim.5. Kaup og sala erlendra aðila á verðbréfum á Íslandi. 6. Kaup og sala innlendra aðila á verðbréfum í útlöndum. 7. Lántökur innlendra aðila hjá erlendum aðilum.8. Lánveitingar innlendra aðila til erlendra aðila.Upplýsingar um framangreindar fjármagnshreyfingar skal senda Seðlabankans eigi síðar en 30 dögum eftir að samningar liggja fyrir. Senda skal skriflegar upplýsingar sem tilgreindar eru í viðauka I með reglum þessum, eða útfyllt eyðublöð sem Seðlabankinn leggur til og þar liggja frammi. Tilkynningaskyldan hvílir á innlendum aðilum. Þó hvílir tilkynningaskylda á erlendum aðila í 1. tl. 1. mgr., sé um að ræða fjárfestingu í atvinnustarfsemi hér á landi í nafni hans.
4. gr.
Reikningar innlendra aðila í erlendum innlánsstofnunum
Einstaklingum og lögaðilum er skylt að tilkynna um stofnun reikninga í erlendum bönkum. Lögaðilar skulu senda mánaðarleg yfirlit um stöðu á slíkum reikningum, en
einstaklingar skulu senda árlegt yfirlit um stöðu reikninga í árslok.
5. gr.
Reikningar erlendra aðila í innlendum innlánsstofnunum
Innlánsstofnanir skulu ávallt skrá reikning erlends aðila með nafni og íslenskri kennitölu hans. Innlánsstofnanir skulu fyrir 10. virkan dag hvers mánaðar senda Seðlabankanum upplýsingar um stöðu reikninga erlendra aðila í lok hvers mánaðar í samræmi við reglur bankans um mánaðarlegar skýrslur innlánsstofnana um efnahag.
6. gr.
Fjárhæðamörk.
Seðlabanki Íslands kann að setja fjárhæðamörk vegna einstakra tilkynningaskyldra upplýsinga samkvæmt reglum þessum. Seðlabankinn mun kynna slík fjárhæðamörk sérstaklega.
7. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglur þessar eru settar af Seðlabanka Íslands samkvæmt heimild í 11. gr. laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál, sbr. og 10. gr. reglugerðar nr. 679/1994 um gjaldeyrismál.
Reglur þessar öðlast gildi þegar í stað. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing frá 23. desember 1992 um upplýsinga- og tilkynningaskyldu vegna gjaldeyrisviðskipta.
Reykjavík, 16. janúar 1995.
Seðlabanki Íslands
Birgir Ísleifur Gunnarsson. Eiríkur Guðnason.
Viðauki I.
Nánar um upplýsingakröfur varðandi tilkynningaskyldar fjármagnshreyfingar sbr. 3. gr. reglnanna.
1. Fjárfestingar í atvinnurekstri skv. 1. og 2. tölulið. Í tilkynningu um fjárfestingar skulu koma fram upplýsingar um hlutafjárkaup og annað stofn- eða viðbótarfjármagn í atvinnufyrirtæki eða eignarhaldsfélagi, nafn fjárfesta og heimilisfang, nafn og lögheimili fyrirtækis eða félags, dagsetningu og fjárhæð fjárfestingar og eignarhlutfall. Jafnframt skal upplýsa um hluthafalán, þ.m.t. lánaviðskipti milli móður- og dótturfyrirtækja, lánsfjárhæð og endurgreiðsluskilmála.2. Fasteignaviðskipti skv. 3. og 4. tölulið. Upplýsa skal um fjárhæð og dagsetningu kaupsamnings eða afsals, nafn og heimilisfang kaupanda og seljanda ásamt lýsingu á fasteigninni. 3. Verðbréfaviðskipti sbr. 5. og 6. tölulið.Ef verðbréfaviðskiptin fara fram fyrir milligöngu löggiltra innlendra verðbréfamiðlara skulu þeir upplýsa um slík viðskipti, en annars hvílir tilkynningaskyldan á einstaklingum og lögaðilum sem eiga í beinum verðbréfaviðskiptum við erlenda aðila. Upplýsa þarf um nafn og heimilisfang viðskiptaaðila, fjárhæð og dagsetningu verðbréfaviðskipta ásamt lýsingu á verðbréfi, þ.e. tegund, útgefanda og útgáfuland. Hlutabréfkaup erlendra aðila hér á landi falla undir 1. tl. 3. gr. reglnanna. 4. Erlendar lántökur og lánveitingar sbr. 7. og 8. tölulið.Innlendir aðilar upplýsi um erlenda lántöku/lánveitingu til lengri tíma en eins árs eða skammtímalán sem ekki tengjast milliríkjaviðskiptum með vöru og þjónustu. Fram komi nafn og heimilisfang lántaka og lánveitanda ásamt helstu lánskilmálum, þ.e. lánsfjárhæð, vaxtakjörum, endurgreiðslum afborgana og dagsetningu lánssamnings og gjalddaga.