logo-for-printing

22. júlí 2014

Fyrirframgreiðsla á erlendum lánum Ríkissjóðs Íslands og Seðlabanka Íslands

Ríkissjóður Íslands og Seðlabanki Íslands endurgreiða fyrirfram í dag lán frá Norðurlöndunum sem tekin voru í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda sem studd var af AGS árið 2008. Um er að ræða endurgreiðslu að fjárhæð 735 milljónir evra, jafnvirði um 114 ma.kr., sem voru upphaflega á gjalddaga á árunum 2019, 2020 og 2021. Er því að fullu búið að endurgreiða lán frá Norðurlöndunum sem samtals námu 1.775 milljónum evra.

Ákvörðun um fyrirframgreiðslu kemur í framhaldi af skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs á Evrópumarkaði sem tilkynnt var um 8. júlí síðastliðinn að fjárhæð 750 milljónir evra, eða jafnvirði 116 ma.kr. Útgáfan veitti svigrúm til að endurgreiða Norðurlandalánin, sem bera óhagstæðari vexti. Útgáfa ríkisjóðs og endurgreiðsla lána nú hefur ekki áhrif á hreinar skuldir ríkissjóðs og Seðlabankans saman, en heildarskuldir ríkissjóðs hækka um 1,9% af VLF aðallega vegna þess að hluta lántökunnar er varið til að greiða niður skuldir sem færðar voru hjá Seðlabankanum. Stærð gjaldeyrisforða er óbreytt vegna ofangreindrar skuldastýringar.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600

Til baka