logo-for-printing

21. janúar 2015

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 01/2015

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands dags 19. desember á síðasta ári. Dráttarvextir breytast því ekkert að þessu sinni og verða því áfram 12,25% fyrir tímabilið 1. - 28. febrúar 2015.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast hinsvegar eins og að neðan greinir og verða fyrir tímabilið 1. – 28. febrúar 2015 sem hér segir;

• Vextir óverðtryggðra útlána 6,00% - (breytast úr 6,50%)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65% - (breytast úr 3,50%)
• Vextir af skaðabótakröfum 4,00% - (breytast úr 4,33%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 01/2015

Til baka