
Önnur fjármálafyrirtæki
https://sedlabanki.is/?pageid=3ac92fba-fd5d-11e4-93fd-005056bc2afe&newsid=36038751-e2c8-11ed-9bae-005056bccf91
27. apríl
Mars 2023
Heildareignir annarra fjármálafyrirtækja í lok mars námu 239,4 ma.kr. og hækkuðu um 6,7 ma.kr. milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 214,4 ma.kr. og erlendar eignir 25,0 ma.kr. Innlendar eignir hækkuðu um 6,4 ma.kr. á milli mánaða en erlendar eignir hækkuðu um 306 m.kr.
Skuldir annarra fjármálafyrirtækja námu 207,3 ma.kr. og hækkuðu um 6,2 ma.kr. í mars. Þar af námu innlendar skuldir 197,9 ma.kr. og erlendar skuldir 9,4 ma.kr. Eigið fé nam 32,1 ma.kr. í lok mars og hækkaði um 447 m.kr frá fyrra mánuði.
Næsta birting:
30.
maí 2023
Töflur
Tímaraðir
Lýsigögn
Annað tengt efni