logo-for-printing

Lífeyrissjóðir

04. febrúar

Desember 2024

Eignir lífeyrissjóða námu 8.231 ma.kr. í desember og hækkuðu um 27,4 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.309,9 ma.kr. og séreignadeilda 921 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.943,1 ma.kr. og hækkuðu um 15,2 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.645,4 ma.kr. og lækkuðu um 1,7 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.149,9 ma.kr. og lækkuðu um 27 ma.kr. Innlend útlán námu 682,1 ma.kr. og hækkuðu um 3,1 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.287,9 ma.kr. í lok desember og hækkuðu um 12,3 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.216,8 ma.kr. og hækkuðu um 10,7 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 1,7 ma.kr. og námu 7,1 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.219,9 ma.kr. í lok desember.


Næsta birting: 06. mars 2025


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is