logo-for-printing

30. desember 1997

Breyting á verðtryggingarreglum

Lenging á lágmarksláns- og binditíma verðtryggðra út- og innlána

Samkvæmt reglum um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár sem Seðlabanki Íslands setti í júní 1995 verður sú breyting nú um áramótin að lágmarkslánstími verðtryggðra lána verður fimm ár í stað þriggja og lágmarksbinditími innlána lengist úr einu ári í þrjú.

 Þessi breyting er áfangi að því marki að draga úr notkun verðtryggingar á skuldbindingum til skamms tíma. Fyrsti áfangi þessara breytinga tók gildi í ársbyrjun 1996 er lágmarksbinditími verðtryggðra innlána var lengdur í eitt ár og lágmarkslánstími verðtryggðra útlána og skuldabréfa í þrjú ár.

Í ofangreindum reglum kom jafnframt fram að stefnt væri að lokaáfanga breytinga á verðtryggingarreglunum í byrjun ársins 2000 þegar heimild til verðtryggingar innlána félli brott en lágmarkslánstími verðtryggðra útlána og skuldabréfa lengdist í sjö ár. Endanleg ákvörðun um þennan áfanga liggur þó ekki fyrir.

 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs bankans, í síma 569-9600.

Nr. 37/1997
30. desember 1997

Til baka