logo-for-printing

06. maí 1998

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok apríl 1998 og til samanburðar í lok desember 1997 ásamt breytingum í mánuðinum.

 Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um tæpan 1,1 milljarð króna í apríl og nam í lok mánaðarins 28,4 milljörðum króna (jafnvirði 396 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendar skammtímaskuldir bankans eru óverulegar og breyttust lítið í mánuðinum.

 Á gjaldeyrismarkaði námu nettó gjaldeyriskaup Seðlabankans í apríl tæpum 3,7 milljörðum króna. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði í apríl um 0,2%.
 
 Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum jókst í apríl um rúma 0,5 milljarða króna og er þá miðað við markaðsverð. Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs lækkaði um 0,3 milljarða króna en ríkisbréfaeignin hækkaði lítillega. Ríkisvíxlaeignin jókst um 0,9 milljarða króna og nam í mánaðarlok rúmum 1,8 milljörðum króna. Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 0,7 milljarða króna í apríl en nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 0,5 milljarða króna og námu 3,6 milljörðum króna í lok apríl. Grunnfé bankans hækkaði um milljarð króna í mánuðinum og nam 19,1 milljarði króna í lok hans.

 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 21/1998
6. maí 1998

Til baka