logo-for-printing

04. september 1998

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok ágúst 1998 og til samanburðar í lok desember 1997 ásamt breytingum í mánuðinum og frá áramótum.

 Gjaldeyrisforði Seðlabankans lækkaði um rúma 1,2 milljarða króna í ágúst og nam í lok mánaðarins 29,2 milljörðum króna (jafnvirði 408,4 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendar skammtímaskuldir bankans hækkuðu um 1 milljarð króna í mánuðinum og námu 1,2 milljörðum króna í lok hans. Í ágúst endurgreiddi ríkissjóður erlend lán að jafnvirði 1,7 milljarða króna.

 Á gjaldeyrismarkaði voru hrein gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans neikvæð 796 milljónir króna í ágúst. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengis-skráningar, lækkaði í ágúst um 0,3%.

 Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum jókst í ágúst um 2,3 milljarða króna og er þá miðað við markaðsverð. Eign bankans í spariskírteinum ríkis-sjóðs og ríkisbréfaeign stóðu í stað en ríkisvíxlaeign jókst hins vegar um 2,3 milljarða króna og nam í mánaðarlok 4,1 milljarði króna. 

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 2,3 milljarða króna í ágúst en nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 1,2 milljarða króna og voru jákvæðar um 4,6 milljarða króna í lok ágúst sem þýðir að innstæður ríkissjóðs í bankanum námu lægri fjárhæð en brúttókröfur hans á ríkið. Grunnfé bankans lækkaði um 2,5 milljarða króna í mánuðinum og nam 23,5 milljörðum króna í lok hans.

 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttir aðal-bókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 48/1998
4. september 1998

Til baka