logo-for-printing

06. maí 1999

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok apríl 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í mánuðinum og frá ársbyrjun.
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,6 milljarða króna í apríl og nam í lok mánaðarins 34,2 milljörðum króna (jafnvirði 467 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). 
Erlendar skammtímaskuldir eru nær engar. Erlendar langtímaskuldir breyttust óverulega í apríl og námu í mánaðarlok 3,4 milljörðum króna. Þær höfðu lækkað um 1,7 milljarða króna frá áramótum.
 Á millibankamarkaði með gjaldeyri keypti Seðlabankinn 1,7 milljarða króna af gjaldeyri í apríl umfram það sem hann seldi. Gengi íslensku krónunnar mælt með vísitölu gengisskráningar lækkaði um 0,4% í mánuðinum.
 Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 11,2 milljörðum króna í apríllok miðað við markaðsverð og jókst um 1,5 milljarða króna í mánuðinum. Breytingin fólst nær öll í aukinni ríkisvíxlaeign bankans sem nam 4,9 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 0,4 milljarða króna í apríl og námu 12,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 0,9 milljarða króna og voru 5,7 milljarðar króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 8 milljarða króna í apríl og voru neikvæðar um 6 milljarða króna í lok hans. Hreyfing á reikningum ríkissjóðs í mánuðinum var óvenjuleg vegna útborgunar launa 30. mars í stað 1. apríl.
Grunnfé bankans lækkaði um 7,2 milljarða króna í mánuðinum og nam 21,8 milljörðum króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 28/1999
6. maí 1999

 

Til baka