logo-for-printing

04. júní 1999

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok maí 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í mánuðinum og frá áramótum.
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði um 2,3 milljarða króna í maí og nam í lok mánaðarins 31,9 milljörðum króna (jafnvirði 430 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Frá ársbyrjun til loka maí styrktist forðinn hins vegar um 2,2 milljarða króna.
 Á millibankamarkaði með gjaldeyri seldi Seðlabankinn 1,2 milljarða króna af gjaldeyri í maí umfram það sem hann keypti. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði um 0,4% í mánuðinum.
 Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 9,3 milljörðum króna í maílok miðað við markaðsverð og lækkaði um 1,9 milljarða króna í mánuðinum. Breytingin fólst nær öll í sölu ríkisvíxla bankans en í lok mánaðarins nam eign hans í ríkisvíxlum 3,1 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 0,5 milljarða króna í maí og námu þær 11,6 milljörðum í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu einnig lítillega og voru 5,4 milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 4,2 milljarða króna í mánuðinum og voru neikvæðar um 1,9 milljarða króna í lok maí. 
Grunnfé bankans lækkaði um 0,7 milljarða króna í mánuðinum og nam 21,1 milljarði króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 34/1999
4. júní 1999

Til baka