logo-for-printing

05. júlí 1999

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok júní 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í mánuðinum.
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 0,7 milljarða króna í júní og nam í lok mánaðarins 31,1 milljörðum króna (jafnvirði 418 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). 
 Á millibankamarkaði með gjaldeyri seldi Seðlabankinn 0,4 milljarða króna í júní umfram það sem hann keypti.  Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði um 0,7% í mánuðinum.
 Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 8,6 milljörðum króna í júnílok miðað við markaðsverð og lækkaði um 0,7 milljarða í mánuðinum.  Breytingin fólst nær öll í sölu ríkisvíxla bankans, en í lok mánaðarins nam eignin 2,3 milljörðum.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 3,9 milljarða í júní og námu þær 15,5 milljörðum í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu aftur á móti um tæpan 1 milljarð og  voru 4,5 milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 3,5 milljarða króna í mánuðinum og voru neikvæðar um 5,3 milljarða króna í lok júní. 
Grunnfé bankans jókst um 0,9 milljarða króna í mánuðinum og nam það 22 milljörðum króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 42/1999
5. júlí 1999

Til baka