logo-for-printing

10. september 1999

Útgáfa minnispenings-kristni á Íslandi í 1000 ár

Í tilefni af 1000 ára kristni á Íslandi og að höfðu samráði við viðskiptaráðuneyti og kristnihátíðarnefnd gefur Seðlabanki Íslands út sérsleginn minnispening úr gulli. Á annarri hlið hans er skjaldarmerki íslenska lýðveldisins en á hinni mynd af húni á bagli eða biskupsstaf sem fannst á Þingvöllum 1957. Bagallinn er talinn frá fyrstu öld íslenskrar kristni og er einn elsti kirkjugripur sem fundist hefur hér á landi. Minnispeningurinn er úr gulli að 9/10 hlutum, 8,65g að þyngd, eða kvartúnsa af hreinu gulli, og er 23 mm í þvermál. Hann verður löglegur gjaldmiðill að verðgildi 10.000 krónur, en aðeins verða slegin 3000 eintök í sérunninni gljásláttu. Peninginn teiknaði Þröstur Magnússon teiknari FIT, en sláttu annast Den Kongelige Mynt í Noregi.

Söluverð peningsins verður 15.000 krónur en hann verður í vandaðri viðaröskju með kynningartexta á íslensku og ensku. Ráðgert er að hefja sölu á innlendum og erlendum markaði í janúar árið 2000. Fram að þeim tíma er hægt panta peninginn hjá rekstrardeild Seðlabanka Íslands.

Ágóði af útgáfu minnispeningsins rennur í Þjóðhátíðarsjóð eins og af fyrri minnispeningaútgáfum, en sjóðurinn var stofnaður 1977 og veitir árlega styrki til varðveislu og verndar þjóðlegra menningarminja.

Myndir af peningnum hér að neðan eru í hlutföllunum 2 á móti 1.

 Nánari upplýsingar veitir Ingvar A. Sigfússon rekstrarstjóri Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 57/1999
10. september 1999

 

 

Til baka