logo-for-printing

06. október 1999

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok september 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í september og frá ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans styrktist um 3,1 milljarð króna í september og nam í lok mánaðarins 34,7 milljörðum króna (jafnvirði 486 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Frá ársbyrjun hafði forðinn styrkst um 5 milljarða króna. Styrking gjaldeyrisforðans í september er tímabundin og skýrist af erlendum lánahreyfingum ríkissjóðs til skamms tíma í því skyni að draga úr markaðsáhættu vegna komandi áramóta.
Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 2,4 milljarða króna í september og höfðu lækkað um 3,8 milljarða króna frá áramótum. Í lok september námu erlend langtímalán bankans 1,3 milljörðum króna og höfðu lækkað um 3,9 milljarða króna frá ársbyrjun. Seðlabankinn átti engin viðskipti á innlendum millibankamarkaði með gjaldeyri í september. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði um 0,6% í mánuðinum.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 8,9 milljörðum króna í septemberlok miðað við markaðsverð og lækkaði um 1,4 milljarða króna í mánuðinum. Breytingin fólst öll í sölu og innlausn ríkisvíxla, en í lok mánaðarins nam ríkisvíxlaeign bankans 2,4 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,7 milljarða króna í september og námu þær 15,9 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 0,6 milljarða króna í mánuðinum og voru 8,5 milljarðar í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 5,2 milljarða króna í september og voru þær neikvæðar um 12 milljarða króna í lok mánaðarins. 
Grunnfé bankans dróst saman um 0,5 milljarða króna í mánuðinum og nam 23,3 milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 64/1999
6. október 1999

 

Til baka