logo-for-printing

27. desember 1999

Nýjar lausafjárreglur um áramót

Seðlabanki Íslands hefur sett nýjar reglur um laust fé bindiskyldra lánastofnana og gilda þær frá 31. desember n.k. Um leið falla úr gildi eldri reglur um laust fé bindiskyldra lánastofnana. Útreikningstímabil sem lauk 20. desember sl. var síðasta gildistímabil þeirra. Gefinn er aðlögunartími að hinum nýjum reglum með þeim hætti að viðurlög við vanhöldum leggjast ekki á af fullum þunga fyrr en að þremur mánuðum liðnum.

Að undanförnu hefur verið unnið að undirbúningi hinna nýju reglna í samstarfi við fulltrúa lánastofnana og Fjármálaeftirlitsins. Til þess að þær gætu tekið gildi þurfti að breyta ákvæðum laga um Seðlabanka Íslands um laust fé. Frumvarp þess efnis var samþykkt á Alþingi skömmu fyrir jól og lögin tóku gildi í dag.

Nýju reglurnar byggja á öðrum grunni en þær eldri og fela í sér að fram fer heildarmat á lausafjáreignum og lausafjárskuldbindingum lánastofnana. Þær eru því enn betur til þess fallnar að tryggja að lánastofnanir eigi nægjanlegt laust fé til þess að mæta skuldbindingum sínum. Að mati Seðlabanka Íslands fela nýju reglurnar ekki í sér minna aðhald að lausafjárstöðu lánastofnana en eldri reglurnar en með þeim mun draga úr neikvæðum hliðaráhrifum sem eldri reglur höfðu á vaxtamyndun á peninga- og verðbréfamarkaði.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Yngvi Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs í síma 569-9600.

Nr. 84/1999
27. desember 1999

 

Til baka