logo-for-printing

06. september 2000

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í ágúst

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok ágúst 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í ágúst og frá ársbyrjun. 
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans hækkaði um 0,4 milljarða króna í ágúst og nam 35,1 milljarði króna í lok mánaðarins (jafnvirði 436 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).
Á millibankamarkaði með gjaldeyri, þar sem Seðlabankinn keypti gjaldeyri fyrir 1 milljarð króna, nam veltan alls 50,1 milljarði króna í ágúst. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,8%.
Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 5,5 milljarða króna í mánuðinum og námu þau 11,7 milljörðum króna í ágústlok.  Síðasta afborgun var greidd af eina langtímaláni Seðlabankans og er það nú uppgreitt.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 7,7 milljörðum króna í ágústlok miðað við markaðsverð og lækkuðu um 2 milljarða króna í mánuðinum.  Þar af eru markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 4,8 milljarðar króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu í ágúst og námu 27,8 milljörðum króna í lok mánaðarins.  Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu einnig um 0,3 milljarða króna í mánuðinum og voru 7,8 milljarðar króna í lok hans.
Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana í Seðlabankanum hækkuðu um 5,9 milljarða króna í ágúst og námu 9,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Þar með hafa nettóinnstæður ríkis í bankanum lækkað um 2,4 milljarða króna frá áramótum.
Grunnfé bankans lækkaði um 3 milljarða króna í mánuðinum og nam 26,1 milljarði króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

 

Nr. 20/2000
6. september 2000

Til baka