logo-for-printing

06. febrúar 2001

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

 

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok janúar 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í janúar 2001. 
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 0,8 milljarða króna í janúar og nam 35 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 410 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,98%. Seðlabankinn seldi gjaldeyri á millibankamarkaði fyrir 4,1 milljarð króna í janúar.
Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 5,8 milljarða króna í mánuðinum og námu 21,6 milljörðum króna í lok hans.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 6,4 milljörðum króna í janúarlok miðað við markaðsverð, drógust saman um 0,1 milljarð króna í mánuðinum. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 3,6 milljörðum króna í lok janúar.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 2 milljarða króna í janúar og námu 37 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust um 4,8 milljarða króna og voru 17,9 milljarðar króna í lok mánaðarins. 
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 2,2 milljarða króna í janúar og voru neikvæðar um 14,3 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 14,3 milljörðum króna.
Grunnfé bankans dróst saman um 4,8 milljarða króna í mánuðinum og nam 27,6 milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Tafla yfir helstu liði í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðla-banka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármála-stofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

 

Nr. 6/2001
6. febrúar 2001

 

 

Til baka