logo-for-printing

06. september 2001

Greiðslujöfnuður janúar - júní 2001 og erlend staða

Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands var 29,7 milljarða króna viðskiptahalli við útlönd á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 32,3 milljarða króna halla á sama tíma í fyrra. Á föstu gengi1 var hallinn þó um 8 milljörðum króna minni í ár en í fyrra. Á öðrum ársfjórðungi nam hallinn 11,6 milljörðum króna samanborið við 20 milljarða króna halla á sama tíma í fyrra. Þá var innflutningur á flugvélum um 4 milljörðum króna meiri en í ár. Á fyrri árshelmingi í heild raskar inn- og útflutningur skipa og flugvéla2 ekki að marki samanburði talna á milli ára. Útflutningur vöru og þjónustu jókst á fyrri árshelmingi um 10% frá sama tíma í fyrra en innflutningur minnkaði um 1,5% reiknað á föstu gengi. Hallinn á þáttatekjum (laun, vextir og arður af fjárfestingu) og rekstrarframlögum nettó jókst mikið frá fyrra ári, sérstaklega vegna vaxtagreiðslna af ört vaxandi erlendum skuldum, og nam hann 16,9 milljörðum króna á fyrri árshelmingi 2001.

Hreint fjárinnstreymi mældist 26,7 milljarðar króna á fyrri árshelmingi 2001 og skýrist af erlendum lántökum og skuldabréfaútgáfu í útlöndum. Af öðrum liðum fjármagnsjafnaðar má nefna að fjárútstreymi vegna erlendra verðbréfakaupa nam 5,9 milljörðum króna sem er mun minna en í fyrra. Bein fjárfesting Íslendinga í fyrirtækjum erlendis var aftur á móti nokkru meiri á fyrri hluta ársins og nam 9,9 milljörðum króna. Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 35,8 milljörðum króna í júnílok og hafði vaxið í krónum talið frá ársbyrjun vegna gengislækkunar krónunnar þrátt fyrir að bankinn hefði gengið á forðann um 4,9 milljarða króna á tímabilinu.

Tafla yfir greiðslujöfnuð við útlönd í milljörðum króna

Erlendar skuldir þjóðarinnar námu 592 milljörðum króna umfram erlendar eignir í lok júní sl. Hrein skuldastaða versnaði um 97 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi vegna viðskiptahalla en þó mest vegna gengislækkunar krónunnar. Meðfylgjandi yfirlit sýna ítarlegri upplýsingar um greiðslujöfnuðinn við útlönd og erlenda stöðu þjóðarbúsins.

Nánari upplýsingar veitir Jakob Gunnarsson deildarstjóri á tölfræðisviði Seðlabankans í síma 569-9600.

1) Viðskiptavegin gengisvísitala er 17,6% hærri á fyrra árshelmingi 2001 en á sama tímabili í fyrra.
2) Sundurliðun vöruskiptajafnaðar er að finna í heimildum Hagstofu Íslands.

Tafla yfir greiðslujöfnuð við útlönd í milljónum

Tafla yfir erlenda stöðu þjóðarbúsins

Nr. 32/2001
6. september 2001

 

Til baka