logo-for-printing

06. september 2001

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok ágúst 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í ágúst 2001 og frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 2,1 milljarð króna í ágúst og nam 36,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 370 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði um 0,9% í mánuðinum. Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 1,4 milljarða króna í mánuðinum og námu 26,9 milljörðum króna í ágústlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í ágústlok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1 milljarði króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 0,5 milljarða króna í ágúst og námu 41,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 0,4 milljarða króna í mánuðinum og voru 24,1 milljarður króna í lok mánaðarins.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 2,2 milljarða króna í ágúst og voru neikvæðar um 11 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 11 milljörðum króna.

Grunnfé bankans hækkaði í ágústmánuði um 2,6 milljarða króna og nam 32,6 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Tafla yfir helstu liði í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

 

Nr. 31/2001
6. september 2001

 

 

 

Til baka