logo-for-printing

30. nóvember 2001

Greiðslujöfnuðurinn við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins; janúar-september 2001

  Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands var 37,1 milljarða króna viðskiptahalli við útlönd á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 43,8 milljarða króna halla á sama tíma í fyrra. Á föstu gengi1 var hallinn þó rúmlega 15 milljörðum króna minni í ár en í fyrra sem er veruleg breyting til hins betra. Á þriðja ársfjórðungi nam hallinn 6,7 milljörðum króna en var 11,5 milljarðar króna á sama fjórðungi í fyrra. Útflutningur vöru og þjónustu jókst á fyrstu níu mánuðum ársins um 7,3% frá fyrra ári en innflutningur minnkaði um 3,4%, hvort tveggja reiknað á föstu gengi. Hallinn á þáttatekjum (laun, vextir og arður af fjárfestingu) og hreinum rekstrarframlögum nam 24 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins og jókst mikið frá fyrra ári vegna vaxtagreiðslna af vaxandi erlendum skuldum þjóðarinnar.

Hreint fjárinnstreymi mældist 31,9 milljarðar króna á fyrstu níu mánuðum ársins og skýrist af erlendum lántökum sem aðallega voru bankalán en útgáfa skuldabréfa á erlendum lánamörkuðum minnkaði. Af öðrum liðum fjármagnsjafnaðar má nefna að fjárútstreymi vegna erlendra verðbréfakaupa nam 5,9 milljörðum króna sem er umtalsvert minna en í fyrra. Bein fjárfesting Íslendinga í fyrirtækjum erlendis var aftur á móti nokkru meiri en í fyrra og nam 14,6 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um 2,6 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins og nam 37,9 milljörðum króna í lok september sl.

Tafla yfir greiðslujöfnuð við útlönd í milljörðum króna

* Reiknað á meðalgengi janúar-september 2001

Erlendar skuldir þjóðarinnar námu 606 milljörðum króna umfram erlendar eignir í lok september sl. Hrein skuldastaða versnaði um 160 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins vegna viðskiptahallans og gengislækkunar krónunnar. Meðfylgjandi yfirlit sýna ítarlegri upplýsingar um greiðslujöfnuðinn við útlönd og erlenda stöðu þjóðarbúsins.

Nánari upplýsingar veitir Jakob Gunnarsson deildarstjóri á tölfræðisviði Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

__________________________
1Viðskiptavegin gengisvísitala var 19,3% hærri í janúar-september 2001 en á sama tímabili í fyrra.

Tafla yfir greiðslujöfnuð við útlönd

1) Breytingin er reiknuð á föstu gengi m.v. meðalgengisvísitölu krónunnar.
2) Neikvætt formerki táknar fjárútstreymi vegna eignaaukningar eða skuldalækkunar.

Tafla yfir erlenda stöðu þjóðarbúsins

*) Bráðabirgðatölur.
1) Skuldastaða í árslok er reiknuð á meðalgengi ársins til samræmis við verga landsframleiðslu en staða í lok ársfjórðunga 2001 er miðuð við áætlaða landsframleiðslu ársins.
2) Erlendar skuldir að frádregnum eignum, án áhættufjármagns (bein fjárfesting og hlutafé).
3) Verg skuldastaða án áhættufjármagns.
  

 

   Nr. 41/2001
30. nóvember 2001

 

 

Til baka