logo-for-printing

05. apríl 2002

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

 

 

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Ís­lands í lok mars 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í mars 2002 og frá ársbyrjun 2002.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 0,3 milljarða króna í mars og nam 36 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 362 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 1,1 milljarð króna í mánuðinum og námu 20 milljörðum króna í lok hans. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 0,02%.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,2 milljörðum króna í marslok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,2 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust í mars um 4,5 milljarða króna og námu 90,4 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,5 milljörðum króna í lok hans.

Seðlar og mynt í umferð jukust um rúmlega hálfan milljarð króna í mars.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 1,3 milljarða króna í mars og voru neikvæðar um 31,4 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 31,4 milljörðum króna.

Grunnfé bankans jókst í mars um 5,9 milljarða króna og nam 40,5 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

  

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Í milljónum króna

    Staða í lok tímabils

    Hreyfingar 2002

Desember

Mars

Frá ára-

Í mars

Eignaliðir :

2001

2002

mótum

Gjaldeyrisforði

36.573

36.033

-541

-347

Markaðsskráð verðbréf

5.099

5.178

79

56

Ríkissjóðs

2.144

2.224

79

56

Annarra

2.954

2.954

0

0

Kröfur á innlánsstofnanir

54.053

90.387

36.334

4.501

Kröfur á aðrar fjármálastofnanir

22.774

5.464

-17.311

-24

Skuldaliðir:

Erlendar skuldir til skamms tíma

14.979

19.979

5.000

-1.099

Seðlar og mynt

9.174

9.081

-93

565

Almennar innstæður innlánsstofnana

965

2.343

1.379

1.419

Staða á bindireikningum innlánsstofnana

17.678

29.090

11.412

3.874

Almennar innstæður annarra fjármálastofnana

837

1.324

487

664

Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana

1.288

1.102

-187

69

Liðir til skýringar :

   Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:

21.595

16.054

-5.541

752

   Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:

-31.099

-31.351

-252

1.345

   Kröfur á aðra, brúttó

76.932

95.955

19.023

4.488

   Grunnfé:

27.817

40.514

12.697

5.858

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innláns­stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

 

Nr. 12/2002

5. apríl 2002

Til baka