logo-for-printing

16. apríl 2002

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 36 milljarða króna

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 16 apríl.  Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 9,6%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 36 milljarðar króna en á innlausn voru 49,5 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 23. apríl n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9600.

Línurit yfir endurhverf viðskipti

Nr. 16/2002
16. apríl 2002

Til baka