logo-for-printing

07. maí 2002

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok apríl 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í apríl 2002 og frá ársbyrjun 2002. 
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,9 milljarða króna í apríl og nam 37,9 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 404 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 9,5 milljarða króna í mánuðinum og námu 10,5 milljörðum króna í lok hans.  Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs.  Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 3,9%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,6 milljörðum króna í apríl lok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 1,7 milljörðum króna. 
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu í apríl um 11,8 milljarða króna og námu 78,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,5 milljörðum króna í mánaðarlok. 
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 5,4 milljarða króna í apríl og voru neikvæðar um 36,8 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 36,8 milljörðum króna.
Grunnfé bankans dróst saman í apríl um 4,5 milljarða króna og nam 36,1 milljarði króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

 Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 16/2002
7. maí 2002

 

 

 

 

Til baka