logo-for-printing

18. júní 2002

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 44,4 milljarða króna.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 18. júní. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 8,8%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 44,4 milljarðar króna en á innlausn voru 41,3 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 25. júní n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Gerður Ísberg, staðgengill framkvæmdastjóra peningamálasviðs, í síma 569-9600.

 

Línurit yfir endurhverf viðskipti

Nr. 25/2002
18. júní 2002

 

Til baka