logo-for-printing

25. júní 2002

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 41,2 milljarða króna

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 25. júní. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 8,5%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 41,2 milljarðar króna en á innlausn voru 34,3 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 2. júlí n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Gerður Ísberg staðgengill framkvæmdastjóra peningamálasviðs, í síma 569-9664.

 

Línurit yfir endurhverf viðskipti

 

Nr. 26/2002
25. júní 2002

Til baka