logo-for-printing

05. júlí 2002

Endurskoðun á gengisskráningarvog krónunnar

Seðlabanki Íslands hefur endurskoðað gengisskráningarvog krónunnar í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2001. Slík endurskoðun fór síðast fram í júlí árið 2001. Meðfylgjandi tafla sýnir nýju vogina og breytingar frá fyrri vog. Nýja vogin tekur gildi eftir gengisskráningu í dag 5. júlí 2002 og verður notuð við útreikning gengisvísitölunnar þar til næsta endurskoðun fer fram um svipað leyti að ári.
Gengisskráningarvogin er endurskoðuð árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að hún endurspegli ætíð eins vel og kostur er samsetningu utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og þjónustuviðskipta. Áhersla er lögð á að hér er aðeins um að ræða tæknilega breytingu á þeirri gengisvog sem notuð er við daglegan útreikning á gengi krónunnar og felur ekki í sér breytingu á stefnu Seðlabankans. Helstu breytingar frá fyrri vog eru að vægi evru eykst um 5,4%, einkum á kostnað vægis Bandaríkjadals, sem minnkar um 2,2%, og bresks punds, sem minnkar um 2%. Aukið vægi evrunnar skýrist af auknu vægi hennar í þjónustuviðskiptum. Með þessum breytingum hefur þróun síðustu ára snúist við, en á árunum 1997-2001 jókst vægi Bandaríkjadals í gengisskráningarvog krónunnar úr 22,4% í 27,0%.
Nánari upplýsingar veitir Arnór Sighvatsson, deildarstjóri á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands, í síma 5699600.

Ný gengisskráningarvog (%)

Byggt á viðskiptum 2001

Breyting frá

Lönd

Mynt

Útflutningsvog

Innflutningsvog

Vog

fyrri vog

Bandaríkin

USD

22,76

26,89

24,83

-2,16

Bretland

GBP

14,60

10,97

12,78

-1,99

Kanada

CAD

1,50

0,96

1,23

-0,13

Danmörk

DKK

7,78

8,54

8,16

-0,52

Noregur

NOK

6,75

6,82

6,78

0,70

Svíþjóð

SEK

1,80

5,16

3,48

-0,96

Sviss

CHF

2,74

1,28

2,01

0,36

Evrusvæði

EUR

38,73

35,43

37,08

5,42

Japan

JPY

3,34

3,95

3,65

-0,72

Norður Ameríka

24.26

27,86

26,06

-2,29

Evrópa

72,40

68,19

70,30

3,02

Evrópusambandið

62.91

60,10

61,50

1,95

Japan

3,34

3,95

3,65

-0,73

Alls

100,00

100,00

100,00

0,00

 

25/2002
5. júlí 2002

Til baka