logo-for-printing

30. júlí 2002

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 26,9 milljarða króna

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 30. júlí. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 8,5%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 26,9 milljarðar króna en á innlausn voru 25,1 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 6. ágúst n.k.

Stöplaritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.

Stöplarit yfir endurhverf verðbréfakaup

 

Nr. 31/2002
30. júlí 2002

 
Til baka