logo-for-printing

01. ágúst 2002

Seðlabanki Íslands lækkar vexti

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans í endurhverfum viðskiptum við lánastofnanir um 0,6 prósentur í 7,9% frá næsta uppboði sem haldið verður 6. ágúst n.k.

Seðlabankinn lækkaði síðast vexti í endurhverfum viðskiptum um 0,3 prósentur 21. júní sl. og hefur með vaxtalækkuninni sem nú hefur verið ákveðin lækkað þessa vexti samtals um 2,2 prósentur frá byrjun apríl sl. og um 3,5 prósentur frá því að þeir urðu hæstir á fyrri hluta árs 2001.

Til grundvallar ákvörðun bankastjórnar um lækkun vaxta nú eru verðbólguspá bankans og mat á ástandi og horfum í efnahagsmálum sem birt voru í ársfjórðungsriti bankans Peningamálum á heimasíðu hans í dag. Vísað er til þeirra um rökstuðning að baki ákvörðuninni.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

 

Nr. 26/2002
1. ágúst 2002

 

 

Til baka