logo-for-printing

07. ágúst 2002

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok júlí 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í júlí 2002 og frá ársbyrjun 2002. 
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,1 milljarð króna í júlí og nam 36,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 427 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 4,7 milljarða króna í mánuðinum og námu 20 milljörðum króna í lok hans.  Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs og lækkunar á inneign ríkissjóðs á gjaldeyrisreikningum.  Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 1,9% og hefur þar með styrkst um tæp 12% frá áramótum.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,7 milljörðum króna í júlílok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,7 milljarði króna. 
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir drógust saman um 0,3 milljarða króna í júlí og námu 83,1 milljarði króna í lok mánaðarins.  Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,6 milljörðum króna í mánaðarlok. 
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 1,8 milljarða króna í júlí og voru neikvæðar um 27,5 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 27,5  milljörðum króna.
Grunnfé bankans dróst saman um 1,1 milljarð króna í júlí og nam það 38,8 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

 

Nr. 27/2002
7. ágúst 2002

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Til baka