logo-for-printing

17. september 2002

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 47 milljarða króna

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 17. september. Samningstíminn er  14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 7,6%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 47 milljarðar króna en á innlausn voru 42,5 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 24. september nk.

 

Stöplarit með endurhverfum viðskiptum

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.

 

 

Nr. 38/2002
17. september 2002

 
Til baka