logo-for-printing

04. október 2002

Helstu liðir í efnahagsreikningi S.Í. í september 2002

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok september 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í ágúst 2002 og frá ársbyrjun 2002. 

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst af sérstökum ástæðum tímabundið um 12,2 milljarða króna í september og nam 49,7 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 575 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs, en þær munu ganga til baka í október og nóvember. Erlend skammtímalán bankans hækkuðu lítillega í mánuðinum og námu 18,3 milljörðum króna í lok hans. 

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,2 milljarða króna, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í fréttatilkynningu bankans nr. 28/2002. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 1,2%.

Í ágúst var gerður framvirkur samningur um sölu á gjaldeyri við innlánsstofnun, en Seðlabankinn skuldbatt sig til að selja stofnuninni gjaldeyri samtals að fjárhæð 3,3 milljarðar króna í þremur greiðslum á tímabilinu september 2002 til mars 2003. Í september var fyrsti hluti þessa samnings efndur og seldi bankinn gjaldeyri að fjárhæð 1,8 milljarðar króna.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í septemberlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,8 milljörðum króna. 

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir drógust saman um 3,8 milljarða króna í september og námu 74,8 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 6,0 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 12,9 milljarða króna í september og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 37,9 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans lækkaði í september um 5,5 milljarða króna og nam það 33,4 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu - pdf-skjal

Nr. 35/2002
4. október 2002

 

Til baka