logo-for-printing

08. október 2002

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 24,6 milljarða króna

 

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 8. október. Samningstíminn er  14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 7,1%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 24,6 milljarðar króna en á innlausn voru 30,3 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 15. október n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.

Stöplarit yfir endurhverf viðskipti

 

Nr. 41/2002
8. október 2002

Til baka