logo-for-printing

26. nóvember 2002

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 54,4 milljarða króna

 

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 26. nóvember. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 6,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 54,4 milljarðar króna en á innlausn voru 55 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 3. desember n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.

Fréttin í heild með stöplariti

Nr.48 /2002
26. nóvember 2002

Til baka