logo-for-printing

03. desember 2002

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 27,9 milljarða króna

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 3. desember. Samningstíminn er  14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 6,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 27,9 milljarðar króna en á innlausn voru 29,3 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 10. desember n.k.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.

Nr. 49/2002
3. desember 2002

Fréttin í heild með stöplariti (6 kb)

Til baka