logo-for-printing

10. febrúar 2003

Seðlabanki Íslands lækkar vexti

 

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans í endurhverfum viðskiptum við lánastofnanir um 0,5 prósentur í 5,3% frá uppboði sem haldið verður 18. febrúar n.k. Aðrir vextir Seðlabankans verða lækkaðir um 0,5 prósentur 11. febrúar n.k.

Til grundvallar ákvörðun bankastjórnar um lækkun vaxta nú eru verðbólguspá bankans og mat á ástandi og horfum í efnahagsmálum, þ.m.t. þjóðhagsspá, sem birt voru í ársfjórðungsriti bankans Peningamálum á heimasíðu hans í dag. Vísað er í ritið um rökstuðning að baki ákvörðuninni.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, í síma 569-9600.

 

Nr. 4/2003
10. febrúar 2003

Til baka