logo-for-printing

04. apríl 2003

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans í mars 2003

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok mars 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í mars 2003 og frá ársbyrjun 2003.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans lækkaði lítillega milli mánaða og nam 35,9 milljörðum króna í lok mars (jafnvirði 465 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans lækkuðu í mánuðinum um 0,9 milljarða og námu þau 10,2 milljörðum króna í lok hans.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 2,5 milljarða króna, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í fréttatilkynningum bankans nr. 28/2002 og 2/2003. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mars um 0,9%.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,6 milljörðum króna í marslok miðað við markaðsverð.  Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 0,5 milljarða króna í mars og námu 73,8 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir stóðu í stað og námu 8,1 milljarði króna í mánaðarlok.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 8,8 milljarða króna í mars og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 26,7 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans lækkaði í mars um 7,3 milljarða króna og nam það 37,1 milljarði króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 10/2003
4.apríl 2003

 

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Í milljónum króna

    Staða í lok tímabils

    Hreyfingar 2003

Desember

Mars

Frá ára-

Í

Eignaliðir :

2002

2003

mótum

mars

Gjaldeyrisforði

37.194

35.940

-1.255

-119

Markaðsskráð verðbréf

5.260

4.602

-658

-114

   Ríkissjóðs

1.816

1.167

-649

-6

   Annarra

3.445

3.435

-9

-109

Kröfur á innlánsstofnanir

69.141

73.848

4.707

-459

Kröfur á aðrar fjármálastofnanir

8.227

8.075

-151

-38

Skuldaliðir:

Erlendar skuldir til skamms tíma

16.499

10.178

-6.321

-964

Seðlar og mynt

9.590

9.104

-486

33

Almennar innstæður innlánsstofnana

1.164

1.144

-20

-116

Staða á bindireikningum innlánsstofnana

21.837

26.832

4.995

-7.215

Almennar innstæður annarra fjármálastofnana

75

79

3

31

Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana

1.258

716

-542

-1.044

Liðir til skýringar :

   Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:

20.696

25.762

5.066

845

   Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:

-20.846

-26.707

-5.861

-8.825

   Kröfur á aðra, brúttó

77.454

82.049

4.595

-480

   Grunnfé:

32.590

37.079

4.489

-7.298



Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Til baka