logo-for-printing

20. október 2003

Breyting á stórgreiðslumörkum og starfrækslutíma stórgreiðslukerfis Seðlabanka Íslands

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur sett nýjar reglur um greiðslu­kerfi, annars vegar reglur um starfsemi jöfnunarkerfa og hins vegar reglur um stórgreiðslukerfi Seðlabanka Íslands. Reglurnar koma í stað reglna nr. 951 frá 29. desember 2000 um aðgang að uppgjörsreikn­ingum í Seðlabanka Íslands og taka gildi 1. nóvember 2003.

 

Reglunum er ætlað að skapa traustari umgjörð um örugga og skilvirka starfsemi greiðslukerfa hér á landi svo uppfylla megi alþjóðlega viður­kennd viðmið í þeim efnum. Þær voru mótaðar í samráði við stjórn Fjölgreiðslumiðlunar hf.

Athygli er vakin á eftirfarandi breytingum á stórgreiðslumörkum og starfrækslutíma stórgreiðslukerfisins:

Breyting á stórgreiðslumörkum

Lágmarksfjárhæð greiðslufyrirmæla sem afgreidd eru í stórgreiðslu­kerfi Seðlabankans verður lækkuð úr 25 milljónum króna í 10 milljónir króna. Fyrirmæli um greiðslur sem eru 10 milljónir króna eða hærri verða því afgreidd í stórgreiðslukerfinu. Fyrirmæli um greiðslur allt að 10 milljónum króna verða afgreidd í jöfnunarkerfinu. Þó verða öll greiðslufyrirmæli vegna uppgjörs í jöfnunarkerfinu og uppgjörs verðbréfaviðskipta afgreidd í stórgreiðslukerfinu án tillits til fjárhæðar.

Breyting þessi tekur gildi 1. nóvember 2003.

Breyting á starfrækslutíma stórgreiðslukerfisins

Almennur starfrækslutími stórgreiðslukerfisins, sem verið hefur frá kl. 8.45 til kl. 18.00 á almennum bankadögum, styttist og verður frá kl. 9.00 til kl. 17.00 á almennum bankadögum. Frá kl. 8.45 til kl. 9.00 verður kerfið þó opið fyrir greiðslufyrirmæli vegna uppgjörs verð­bréfaviðskipta. Þá verður kerfið opið frá kl. 17.00 til kl. 17.30 fyrir innbyrðis uppgjör banka.

Breyting þessi tekur gildi 1. nóvember 2003.

Nánari upplýsingar

Reglurnar verða birtar í heild sinni á heimasíðu Seðlabanka Íslands og í Stjórnartíðindum.

Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Ásgeirsson á fjármálasviði Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

 

Nr. 27/2003

20. október 2003

Til baka