logo-for-printing

04. desember 2003

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok nóvember 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í nóvember 2003 og frá ársbyrjun 2003.

 Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst í mánuðinum um 6,0 milljarða króna og nam 57,7 milljörðum króna í nóvemberlok (jafnvirði 776 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans vegna gjaldeyrisforða eru engin, en um síðustu áramót námu þau rúmlega 16 milljörðum króna.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 3,8 milljarða króna í nóvember í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a. var greint frá í maíhefti Peningamála 2003.  Gengi íslensku krónunnar styrktist um 0,38% í nóvembermánuði.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,9 milljörðum króna í nóvember lok miðað við markaðsverð.  Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 0,7 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 2,6 milljarða króna í nóvember og námu 41,7 milljörðum króna í lok mánaðarins.  Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið og námu 3,6 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 8,8 milljarða króna í nóvember og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 25,3 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans lækkaði í nóvember um 4,1 milljarð króna og nam 33,3 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
 
Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 83kb)

Nr. 32/2003
4. desember 2003

Til baka