logo-for-printing

06. janúar 2004

Breytt fyrirkomulag á miðlun upplýsinga um viðskipti Seðlabanka Íslands

Í ársbyrjun 2004 breytist miðlun á upplýsingum um uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum Seðlabanka Íslands við lánastofnanir samhliða því sem upplýsingar um uppboð á innstæðubréfum verða birtar með reglubundnum hætti. Framvegis verða þessar upplýsingar birtar á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is á svæði sem ber yfirheitið Markaðir, en þar verður að finna aðgengilegt yfirlit yfir þessar aðgerðir Seðlabanka Íslands og fleiri viðskipti.

Upplýsingarnar verða birtar með þessum hætti frá og með 6. janúar 2004. Sérstakar tilkynningar um endurhverf viðskipti verða því ekki lengur sendar út.

Nánari upplýsingar um þetta veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs Seðlabanka Íslands í síma 569 9664.

Nr. 1/2004
6. janúar 2004

Til baka