logo-for-printing

06. apríl 2004

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok mars 2004

Í meðfylgjandi yfirliti er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok mars 2004 og til samanburðar í lok febrúar 2004 og í lok desember 2003.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst í mars um 9,4 milljarða króna og nam 66,7 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 924 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Þessi aukning skýrist af lánahreyfingum ríkissjóðs, gengisendurmati og kaupum á gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,8 milljarða króna í mars í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a. var greint frá í marshefti Peningamála 2004.

Gengi íslensku krónunnar veiktist um 3% í marsmánuði.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 5,4 milljarða króna í mars og námu 42,2 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 2,6 milljarða króna og námu 4,9 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,9 milljörðum króna í marslok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 0,7 milljörðum króna.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana hækkuðu um 14,1 milljarð króna í mars og námu 43,1 milljarði króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans lækkaði í mars um 4,6 milljarða króna og nam 26,4 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 45 kb)

 

 Nr. 8/2004
6. apríl 2004

Til baka