logo-for-printing

16. júní 2004

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Í kjölfar hækkunar stýrivaxta Seðlabanka um 0,2 prósentur þann 11. maí sl.  og 0,25 prósentur 8. júní sl. verður breyting á I. kafla vaxtatilkynningarinnar. Grunnur dráttarvaxta til útreiknings dráttarvaxta af peningakröfum í krónum hækkar því til samræmis breyttum stýrivöxtum um 0,45% eða úr 5,3% í 5,75%. Vanefndaálag hækkar um 0,05 prósentur og því hækkar samtala grunns dráttarvaxta og vanefndaálags um 0,5% eða úr 17,0% í 17,5% þann 1. júlí næstkomandi. Aðrir þættir vaxtatilkynningar hafa ekki breyst.

Til baka