logo-for-printing

06. september 2004

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok ágúst 2004

Í meðfylgjandi yfirliti er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok ágúst 2004 og til samanburðar í lok júlí 2004 og í lok desember 2003.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,6 milljarða króna í ágúst í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína (sjá t.d. nóvemberhefti Peningamála 2003). Gjaldeyrisforði bankans jókst um 2,7 milljarða króna í mánuðinum og nam 70,8 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 981 milljón Bandaríkjadala. Gengi krónunnar lækkaði um 1,3% í ágúst.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 6,4 milljarða króna í ágúst og námu 21,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir drógust hins vegar lítillega saman og námu 9,7 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir drógust saman í mánuðinum um 11,6 milljarða króna og námu 23,3 milljörðum króna í lok hans en skuldir við aðrar fjármálastofnanir stóðu því sem næst í stað.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,2 milljörðum króna í ágústlok miðað við markaðsverð.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana hækkuðu um 7,2 milljarða króna í ágúst og námu 23,8 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans lækkaði í ágúst um 12,3 milljarða króna og nam 34,5 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.



Nr. 25/2004
6. september 2004

 

Fréttin í heild með töfluyfirliti um efnahag Seðlabanka Íslands (45 kb)

Til baka