logo-for-printing

06. maí 2005

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok apríl 2005

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok apríl 2005 og til samanburðar í lok mars 2005 og í lok desember 2004.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 0,6 milljarða króna í apríl sl. í samræmi við áður kynnta áætlun hans um að viðhalda gjaldeyrisstöðu sinni. Gjaldeyrisforði bankans jókst um 2 milljarða króna í mánuðinum og nam 61,5 milljörðum króna í lok mánaðarins sem jafngildir 974 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Þessi hækkun skýrist að mestu leyti af því að gengi íslensku krónunnar veiktist um 4,3% í apríl.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 4,5 milljarða króna í apríl og námu 17,3 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 0,4 milljarða króna og námu 7,1 milljarði króna í mánaðarlok. 

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 2,2 milljörðum króna í apríllok miðað við markaðsverð. Vegna aukaútdráttar Íbúðarlánasjóðs á húsbréfum hefur verðbréfaeign bankans lækkað um 1 milljarð króna frá áramótum.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir lækkuðu um 4,4 milljarða króna í mánuðinum og námu 14,6 milljörðum króna í apríllok, en skuldir við aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana lækkuðu um 0,7 milljarða króna í mánuðinum og námu 22,5 milljörðum króna í lok apríl. Frá ársbyrjun hafa þær hækkað um 4,7 milljarða króna.

Grunnfé bankans lækkaði í apríl um 4,3 milljarða króna og nam 26 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu

 Nr. 13/2005
6. maí 2005

Til baka