logo-for-printing

06. júlí 2005

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok júní 2005

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok júní 2005 og til samanburðar í lok maí 2005 og í lok desember 2004.

Gjaldeyrisforði bankans jókst um 0,7 milljarða króna í mánuðinum og nam 62,4 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 960 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gengi íslensku krónunnar styrktist um 0,9% í júní.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 14 milljarða króna í júní og námu 30 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 0,8 milljarða króna og námu 9,6 milljörðum króna í mánaðarlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 2,2 milljörðum króna í lok júní miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir hækkuðu um 7,2 milljarða króna í mánuðinum og námu 29 milljörðum króna í júnílok.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana hækkuðu um 8,4 milljarða króna og námu 24,3 milljörðum króna í lok júní.

Grunnfé bankans hækkaði í júní um 7,7 milljarða króna og nam 41,2 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 17 kb)

Nr. 19/2005
6. júlí 2005

 


 

Til baka