logo-for-printing

26. september 2005

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Að þessu sinni eru hvorki breytingar á almennum vöxtum verðtryggðra né óverðtryggðra lána. Breytingar eru hins vegar á dráttarvöxtum peningakrafna í erlendri mynt. Dráttarvextir peningakrafna í Bandaríkjadölum hækka um 0,5% og eru 7,0% en dráttarvextir peningakrafna í Sterlingspundum lækka um 0,5% og eru 7,5%.

 

Sjá nánar á síðu tilkynninga um vexti.

Til baka