logo-for-printing

04. nóvember 2005

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok október 2005

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok október 2005 og til samanburðar í lok september 2005 og í lok desember 2004.

Gjaldeyrisforði bankans minnkaði um 11,2 milljarða króna í mánuðinum og nam 59,5 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 976 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gjaldeyrisforðinn minnkaði einkum vegna lánahreyfinga ríkissjóðs.

Gengi íslensku krónunnar styrktist um 1,1% í október.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 15,3 milljarða króna í október og námu 64,3 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 2,8 milljarða króna og námu 11 milljörðum króna í mánaðarlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 1,9 milljörðum króna í lok október miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir hækkuðu um 9 milljarða króna í mánuðinum og námu 23,7 milljörðum króna í októberlok.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana lækkuðu um 6,8 milljarða króna og námu 66,2 milljörðum króna í lok október.

Grunnfé bankans jókst í október um 8,8 milljarða króna og nam 36,2 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 37kb)


Nr. 33/2005
4. nóvember 2005

Til baka