logo-for-printing

22. nóvember 2005

Ný útgáfa af ritinu Economy of Iceland

Economy of Iceland fyrir árið 2005 hefur verið birt á vef Seðlabanka Íslands. Í ritinu er fjallað um gerð hagkerfis á Íslandi, en það hefur verið gefið árlega út af Seðlabanka Íslands frá árinu 1987. Ritinu er fyrst og fremst ætlað að ná til lesenda erlendis, svo sem starfsfólks alþjóðlegra stofnana sem fjalla reglulega um efnahagsmál á Íslandi, til starfsmanna svokallaðra matsfyrirtækja sem meta lánshæfi íslenskra lántakenda, fjármálastofnana, erlendra fjárfesta, sendiráða og almennt til þeirra sem vilja kynna sér betur íslenskt hagkerfi.

Ritið er hér birt sem svokallað pdf-skjal. Sjá nánar:

Economy of Iceland 2005

Til baka