logo-for-printing

06. febrúar 2006

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok janúar 2006

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok janúar 2005 og til samanburðar í lok desember 2005 og í lok desember 2004.

Gjaldeyrisforði bankans jókst um 1,2 milljarða króna í mánuðinum og nam 68,5 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 1.099 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gjaldeyrisforðinn jókst vegna reglubundinna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði.

Gengi íslensku krónunnar veiktist í janúar um 0,7% skv. gengisvísitölu.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 9,8 milljarða króna í janúar og námu 68 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 4,3 milljarða króna og námu 16,2 milljörðum króna í mánaðarlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 1,7 milljörðum króna í lok janúar miðað við markaðsverð.
Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir lækkuðu um 14,3 milljarða króna í mánuðinum og námu 19,9 milljörðum króna í janúarlok.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana hækkuðu um 10,5 milljarða króna og námu 86,4 milljörðum króna í lok janúar.

Grunnfé bankans dróst saman í janúar um 15,1 milljarð króna og nam 32,4 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 38KB)

Nr. 5/2006
6. febrúar 2006

Til baka