logo-for-printing

06. mars 2006

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok febrúar 2006

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok febrúar 2006 og til samanburðar í lok janúar 2006 og í lok desember 2005.

Gjaldeyrisforði bankans jókst um 3,7 milljarða króna í mánuðinum og nam 72,1 milljarði króna í lok hans sem jafngildir 1.104 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok.  Gjaldeyrisforðinn jókst vegna reglubundinna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði og gengishagnaðar.

Gengi íslensku krónunnar veiktist í febrúar um 2,8%.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 15 milljarða króna í febrúar og námu 83 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 4,8 milljarða króna og námu 11,4 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 1,7 milljörðum króna í lok febrúar miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir jukust um 5,7 milljarða króna í mánuðinum og námu 25,6 milljörðum króna í febrúarlok.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana hækkuðu um 4,7 milljarða króna og námu 91 milljarði króna í lok febrúar. 

Grunnfé bankans jókst í febrúar um 5,6 milljarða króna og nam 38 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Sjá fréttina í heild með töflu (pdf-skjal, 37 KB) 

Nr. 7/2006 
6. mars 2006


 

Til baka