logo-for-printing

31. maí 2006

Innköllun seðla

Með reglugerð nr. 1125 frá 25. nóvember 2005 ákvað forsætisráðherra að 10, 50 og 100 króna seðlar skuli innkallaðir. Seðlabanki Íslands kynnir nú framkvæmd þeirrar innköllunar.

Í ársbyrjun 1981 var gjaldmiðilsbreyting á Íslandi þegar verðgildi krónunnar var hundraðfaldað. Nýr gjaldmiðill var gefinn út og eldri peningar innleystir fyrir nýja. Meðal annars voru settir 10, 50 og 100 króna seðlar í umferð. Árið 1984 hætti Seðlabanki Íslands að setja 10 króna seðla í umferð, 1987 50 króna seðla og 1995 var hætt að setja 100 króna seðla í umferð. Í staðinn fyrir þessa seðla var slegin mynt með sömu verðgildum. Í lok apríl sl. voru enn í umferð um 119 milljónir króna af 10, 50 og 100 króna seðlum.

Frestur til að innleysa framangreinda seðla er 12 mánuðir frá birtingu auglýsingar um innköllunina, þ.e. til 1. júní 2007. Á tímabilinu eru allir bankar og sparisjóðir skyldugir að taka við þessum seðlum og láta í staðinn annan lögmætan íslenskan gjaldmiðil. Að þessum fresti liðnum hætta seðlarnir að vera gjaldgengir í viðskiptum en Seðlabankinn mun innleysa þá í ekki skemmri tíma en 12 mánuði eftir að framannefndur frestur rennur út.

Auglýsing um innköllunina var birt í dagblöðum í dag og verður birt í Lögbirtingablaðinu 1. júní 2006. Einnig má finna efni um innköllunina á vef Seðlabanka Íslands. 

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Pálsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 20/2006
31. maí 200

Til baka