logo-for-printing

22. ágúst 2006

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 8/2006

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Samkvæmt 6. gr. í kafla nr. III um dráttarvexti í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, skulu dráttarvextir breytast 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Dráttarvextir haldast því óbreyttir 23,5% til og með 31. desember 2006 sbr. vaxtatilkynningu nr. 6/2006 dags 14. júní 2006.

Í ljósi stýrivaxtahækkunar 16. ágúst sl. hækka almennir vextir sem Seðlabanki Íslands auglýsir með hliðsjón af lægstu vöxtum skv. 4. gr. vaxtalaga. Frá og með 1. september 2006 hækka vextir óverðtryggðra lána um 0,5% og verða 15,0%. Í kjölfarið hækka vextir af skaðabótakröfum úr 9,7% í 10,0%. Vextir verðtryggðra lána haldast óbreyttir og verða áfram 4,85%.

Sjá nánar á síðu um vexti

Til baka